Jæja gott fólk, nú er komið að því brjóta odd af oflæti sínu og haga lífi sínu í takt við kröfur samfélagslegrar firringar Lýðveldisins Íslands [lesist Bananalýðveldis], when in Rome do as the Romans (ha, er hægt að segja þetta svona?) . Sú firring felur í sér að sofa á nóttunni og fara snemma á fætur, nota og fara eftir klukkum almennt en vera þó hæfilega seinn samt eins og allir hinir, ferðast um allt á einkabíl og keyra aðeins of hratt án þess að vera sektaður o.s.frv. o.frv.
(gangbrautarljós stýrð af göngufólki ónýta samstillingu stóru gatnamótaljósanna, hvað varð um stokkana hans Dags B. Eggertssonar? -Úps, kusum við óvart Íhaldið í Borgina líka..)
Heimspekileg tilraun mín til að hafna tímanum strandaði á blendnibreytu sem ekki var hægt að festa; samfélagstímanum, aðferðafræðilegt vandamál sem meira að segja ég réð ekki við. Tilrauninni er formlega lokið, kannski var hreint tilraunasnið ekki heppilegt rannsóknarsnið á svo tröllvaxið fyrirbæri sem tíminn er. En nú að öðru.
Kæru Íslendingar, látum ekki bjóða okkur endalausar ál-bananaverksmiðjur, við getum miklu betur. Slagorðið “Think globally, act locally” á svo sannarlega við í þessum efnum ekki síst þegar við höfum í huga að Rio Tinto íhugar yfirtöku á Alcoa. Látum ekki ljúga að okkur að velferð okkar verði að felast í því að bjóða erlendum auðhringum sem stunda þrælahald og kúgun í fjarlægum heimsálfum (og jafnvel hér heima), að reisa verksmiðjur og virkjanir og fá rafmagnið “okkar” fyrir skidogingenting. Þess háttar pólitík felur í sér arðrán, sóun á auðlindum, mannréttindabrot og valdníðslu. Fyrrgreindri lygi einsog mörgum öðrum lygum hefur verið haldið að okkur í of langan tíma, en lygi sem er sögð nógu oft verður á endanum sönn í hugum okkar- en aðeins í hugum okkar. Stöðvum heilaþvottinn og hugsum dæmið upp á nýtt, tökum skynsamlegar og yfirvegaðar ákvarðanir í vor- að lokinni sjálfstæðri gagnrýninni íhugun um málefnin.
Viva la Revolución verde socialista!!! (þetta er google-spænska)
Lifi hin Græna Sósíalistabylting!!! (og þetta er google þýðing)








