Kv(endi)

Hún var dáin, þó ekki í dag,

tíminn synti afturábak.

Nákaldur koss hennar frysti tímann.

Í sömu andrá féll alheimslungað saman.

Ekkert var sem síðar.

Öldur rísa,

öldur falla,

eftir höfði hennar dansar heimurinn.

Minn.

 

Sá sem getur greint þennan leirburð fær vegleg verðlaun,

tjah, allavega mikið lof höfundar :-)

Published in: Uncategorized on október 31, 2006 at 8:44 pm Ummæli (17)

Frelsi til sölu

Frelsi

 

Hið algera frelsi vort

er að vera eingu háður

gera allt af frjálsum vilja

fúsum

forðast allt sem hneppir

segja ég er ég

Einginn segir mér fyrir verkum!

Ég geri ekkert nema það sem er frjálst.

Og fyrr en varir

erum við fangar

vors eigin frelsis.

 

(Frelsi II eftir Eirík Brynjólfsson)

 

Published in: Uncategorized on október 26, 2006 at 10:30 pm Ummæli (9)

Micro-ecosystem in a bowl (a king is missing?)

Hér í “stofunni” heima hjá mér býr örsmátt vistkerfi í glerkúlu, uppi á gamla Orion sjónvarpinu mínu (sem fæddist í Austur-Þýskalandi fyrir fall múrsins). Þetta vistkerfi samanstendur af þörungagróðri í botninum og sniglum sem ráfa kæruleysislega um grýttan botninn. Sniglarnir bregða sér annað slagið í skógarferð í Þörungadalnum, fara saman í rómantíska könnunarleiðangra upp úr vatninu, verða ástfangnir á leiðinni og veltast svo um af ást, sem hefur orðið þess valdandi að ég hef ekki lengur tölu á hve margir þeir eru.

Svona hefur vistkerfið gengið síðan kóngurinn (gullfiskurinn Elvis) yfirgaf þennan litla heim, en hann var af tegund sem þreifst ekki sérlega vel í svo litlu vistkerfi. Fram að dauða hans og fyrir komu sniglanna var kúlan alls ekki sjálfbært vistkerfi eins og hún virðist vera í dag. Elvis var nefnilega eins og hinn mennski nafni hans mikið átvagl og eftir því sóðalegur í umgengni sinni við heimili sitt svo að Almættið mátti hafa sig allan við að fæða kónginn, skipta um vatn og þrífa kúluna að innan. Kóngurinn unndi afar illa við þessi valdarán að ofan og tímabundna útlegðina sem þeim fylgdi. Svo illa að einn daginn sem hann svamlaði í hliðarheiminum; stóru vatnskönnunni, lést hann af heimþrá. Blessuð sé minning hans.

Lífið í kúlunni í dag gengur svo að segja af sjálfu sér, geislar sólar næra þörungana, þörungarnir sniglana og sniglarnir halda veggjum kúlunnar hreinum. Almættið sáldrar reyndar smá örðu af fiskafóðri í kúluna einu sinni í viku án þess að vita nokkuð hvort einhver étur það, en ef ske kynni að kóngurinn lifi enn eins og svo margir aðdáendur halda fram þá sveltur hann allavega ekki í kúlunni minni.

Elvis

Published in: Uncategorized on október 23, 2006 at 9:36 pm Ummæli (8)

Drög að helgi

Nú er enn ein helgin gengin í garð og hér koma drög að henni:

Föstudagur:
Námskeið frá 17-20, hugsanlegt kaffihúsarölt á eftir ef veður leyfir.

Laugardagur:
Ljósmyndasýning í Ljósmyndasafni Reykjavíkur kl:14; Pólland Kommúnismans 1969-89 eftir Chris Niedenthal. Kl. 20: Útskriftar- og innflutningsfest hjá Hákoni og Öbbu, Hákon BS í Iðnaðar- og vélaverkfræði – þrefalt HÚRRA fyrir Hákoni :-)

Sunnudagur:
Afslöppun og heimspekilegar vangaveltur um lífið og tilveruna… baka pönnukökur og læra kannski?

starfleet-engineering-logo.jpg

Published in: Uncategorized on október 20, 2006 at 9:32 pm Ummæli (3)

Njótið Sólarinnar

400munch-sun.jpg

Edvard Munch’s The Sun

Nenni ekki að tala núna en bendi ykkur á nýuppfærða Innri síðu, “Hver  er maðurinn” hér í dálknum hægra megin. Einnig nýr tengill í tónlistargúrúið White Horse.

!njótið!

Published in:  on október 19, 2006 at 12:42 pm Ummæli (5)

Af þoku hugsana minna

Dagarnir fæðast andvana,

deyjandi draumar,

sundurleitar hugsanir svífa yfir úfnum kolli greifans af Skerjagarði.

Þokan þéttist með hverri hugsun…

…uns þær verða svo þungar að þeim rignir niður kinnarnar.

Mér er kalt.

- Glenn Miller á fóninn, “In the Mood”.

Fer í heita sturtu.

Not in the mood.

- Á morgun kemur nýr dagur?

- Já.

„…vér vonum allt, vér höfum staðist margt og vér vonumst til þess að geta staðist allt. Sé eitthvað dyggðugt, fagurt, háleitt eða lofsvert, þá sækjumst vér eftir því.“

(áminning Páls)

rain.jpg

 

Published in:  on október 18, 2006 at 7:12 pm Ummæli (6)

Gloria

Jesus died for somebody’s sins but not mine
meltin’ in a pot of thieves
wild card up my sleeve
thick heart of stone
my sins my own
they belong to me, me

people say “beware!”
but I don’t care
the words are just
rules and regulations to me, me

————-

Hef ekki margt að segja þessa dagana, leyfi þess vegna Patti Smith að tala fyrir mig en þetta lag hefur sönglað í íbúðinni minni síðustu dægur…

————-

I-I walk in a room, you know I look so proud

I’m movin’ in this here atmosphere, well, anything’s allowed
and I go to this here party and I just get bored
until I look out the window, see a sweet young thing
humpin’ on the parking meter, leanin’ on the parking meter
oh, she looks so good, oh, she looks so fine
and I got this crazy feeling and then I’m gonna ah-ah make her mine
ooh I’ll put my spell on her

here she comes
walkin’ down the street
here she comes
comin’ through my door
here she comes
crawlin’ up my stair
here she comes
waltzin’ through the hall
in a pretty red dress
and oh, she looks so good, oh, she looks so fine
and I got this crazy feeling that I’m gonna ah-ah make her mine
————

red-dress-woman.jpg

Published in:  on október 17, 2006 at 2:54 pm Ummæli (8)

Októbe(e)rfest

Jæja nú styttist óðfluga í svallveislu mánaðarins eða Októberfest eins og fyrirsögnin gefur til kynna. Hátíðin sú fer fram í risatjaldi fyrir framan Aðalbyggingu Háskóla Íslands eins og mörg ykkar vita. Ekki er þar með sagt að siðapostuli síðustu færslu sjái sér fært að mæta, en hann er önnum kafinn við próflestur þessa dagana.

Aftur á móti er ekki ekki hægt að neita því að lífsnautnamaðurinn hefur marga fjöruna sopið í þessum efnum og ekki laust við að hann finni fyrir bjórkláða í vinstri framhandleggnum sem mun eflaust ágerast eftir því sem nær dregur Dómsdegi.

WWJD? Sennilega ganga hægt um gleðinnar dyr og breyta vatni í vín fyrir þá snauðustu, ég mun gera mitt besta.

Spurning til lesenda: WWJD at Octoberfest?

Jesus
ps. Aðgát skal höfð í nærveru sálar og bið ég því um að óþarfa guðlast verði “lágmarkað” í svörum.

Published in:  on október 11, 2006 at 11:41 pm Ummæli (10)

WWJD

Bestu þakkir fyrir góðar viðtökur kæru lesendur. Um helgina slæptist ég sem svo oft áður um öldurhús borgarinnar og viðhélt þannig því slarklíferni sem ég virðist hafa tileinkað mér þetta árið og er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi. Það sem þó stóð upp úr voru mórölsk skilaboð frá Guðssyninum letruð á bol sem gamall bekkjarbróðir minn klæddist: WWJD? (What Would Jesus Do?). Ég ákvað að tileinka mér þessa setningu og spyrja sjálfan mig hér eftir „Hvað myndi Jesú gera?“ þegar ég hef grun um að ég sé að ana út í einhverja vitleysu, því þrátt fyrir að undirritaður sé álíka trúaður og biðskyldumerki (með fullri virðingu fyrir hugsanlegum existensíalískum hugleiðingum þeirra) þá ber ég virðingu fyrir siðfræðilegum gildum kristindómsins og lít á þau sem sammannleg.

Open message to G.W. Bush: What would Jesus bomb?
sign

Týndi Guðssonurinn kveður í bili…

Published in:  on október 9, 2006 at 4:35 pm Ummæli (12)

Vetrarkvíði

Þegar ég vaknaði í morgun sótti að mér óþægileg tilfinning, nístingskuldi í brjóstinu. Ég breiddi sængina upp fyrir haus og gat ekki hugsað mér að fara á fætur strax af ótta við gráa jörð og kaldan næðing sem nístir inn að beini. Eftir korter „kostaði ég huginn að herða“, reis úr rekkju og gægðist út um gluggann, mér til mikillar gleði skein sólin á græna grund.

Síðar í dag leit ég inn á dettifoss.is og sá að á Skerinu hafði borið á næturfrosti. Líklega hefur hugurinn vaknað á Skerinu í morgun en skrokkurinn í Reykjavík í anda tvíhyggju Descartesar, verð að fara að lesa eitthvað annað en heimspeki á síðkvöldum…

Frost

Published in:  on október 6, 2006 at 4:16 pm Ummæli (11)