Sælir þolinmóðu lesendur.
Það er skemmtilegt frá því að segja að við Lára systir ætlum að eyða jólunum á Kópaskeri, fjarri heimsins vígaslóð. Eitthvað er á huldu ennþá hvar foreldrar okkar ætla að dvelja, annaðhvort í Kóngsins Kaupinhafn eða á Skerinu. Mig grunar sterklega að Skerið verði fyrir valinu því eins og faðir vor komst að orði:„En hvað með Láru og Árna… já og rjúpurnar!“ Skötuhjúin Ingibjörg systir og Baldur mágur verða vonandi nálægt okkur með aðstoð nútíma fjarskiptatækni [lesist: Skype] sem og aðrir vinir og vandamenn. Ef við verðum ein þá höldum við bara kokteilsósujól og dönsum kringum hýra jólatréð ala Bogomil Font og félagar.

muhahaha já…:D
Þetta reddast, eins og allt annað! Ég er farin að hlakka til!!!!!!!
Ekkert ad óttast, pabbi og mamma halda ykkur félagsskap. En eru ad hugsa um ad kíkja á mig eftir nýárid!
Love, inga
hehe ok fjúkk… pabbi verður gera rjúpurnar maður…
en ykkar verður sárt saknað Inga mín :´(
Aldrei að vita nema við Lára skellum okkur bara með þeim gömlu
hmm, kokteilsósujól átti nú að vera majonesjól, kannski ekki allur munur því…