

Halló! Er einhver þarna úti? Vinur minn hringdi í mig áðan og bað mig um að blogga burt neikvæðni síðastliðinna daga. Ég geri hér með tilraun til þess. Ég er að þróa með mér ritstíflu. Þetta byrjar ekki vel. Ég var reyndar valinn maður ársins af Time Magazine, það var samt ekkert sérstök upphefð í því, ég var nefnilega ekki sá eini sem var valinn. Hvernig væri að breyta um útlit á þessari síðu, hún er að staðna svolítið, útlitsbreyting gæti knúið fram breytingar á innihaldi. Kannski ekki. Þessi blái litur er svolítið þungur, nenni samt ekki að hafa þetta gult, brúnt er kannski málið? Ég er að hugsa um að skoða þetta nánar í jólafríinu. Ég ætla norður á miðvikud. eða fimmtud. Reyni að koma við á Akureyri hjá Láru systu, ekki þýðir nú mikið að færa henni blóm þessa dagana, hún vinnur í blómabúð. Heimferð Ódysseifs er semsagt framundan eftir að hafa siglt úfinn sæ um tíma, verið táldreginn af sírenum sem elskuðu hann hér um bil upp til agna, slegist við kíklópa og aðra óvætti. Ég hef ekki lesið Ódysseifs kviðu, svo ekki eyða púðri í að leiðrétta mig. Þar að auki er ég ekki fullorðinn ennþá, þannig að ég reikna með að snúa aftur á vit ævintýranna í kringum áramótin, þó af meiri varkárni og hófsemd en áður. Ef þið hafið rekist á einsog 15 metra af grænni slönguseríu, hafið samband, faðir minn er á höttunum eftir þessu. Sjálfur hef ég ekki gaman af ljósaseríum frekar en öðru sem tengist jólunum. Ætla samt að gefa jólunum séns í ár, Láru minnar vegna, við sömdum um það.
Jæja, best að lauma einni skrípó í anda jólanna hérna svona til uppörvunar, njótið

Gaman að þessu, sérstaklega þegar
Seigur Gammel
Þetta er alveg að hafast!
Ekki gaman af jólunum?? beh, huh, what? heh:P Jólin eru fín, frí frá vinnu, enginn skóli, fjölskyldan að koma saman, frábær matur og geðveik stemmning:D plús pakkar!!!
og nammiát líkt og aldrei fyrr:P laufabrauð og graflax, og ekki er nú mamma þín slæmur kokkur:P En já, við förum að hittast. Svo bara bless á meðan.. eða some:)
Eitt orð sem réttlætir tilvist jólanna: Rjúpur.
Já og sjálfsagt sitthvað fleira, man bara ekkert í augnablikinu, maturinn er oft góður og kökurnar, það er bara svona þegar maður er orðinn visst gamall þá fær maður fáa pakka og getur ekki étið eins og manni sýnist nema það bitni á holdafarinu… En ég hlakka samt til að hitta þig og allt hitt frændfólkið
jams:D sömuleiðis:P
Heyrðu ég vona nú að maður rekist á þig á djamminu í höfuðstaðnum um áramótin. Ég mæli með að þú njótir þess að gera ekki rassgat um jólin eins og ég ætla að gera
Elska tig! – sjáumst a skype tegar tu ert komin heim og heyra allt um ófarir minar….
Nóg af þessu slönguseríu rusli utan á húsum tók ég eftir á leið minni norður í gær, ættir að geta fundi e-ð sem hentar………..
ertu farinn norður? erum nefnilega með jólakort til þín…
Þú hefur nú bara meira en gott af því að skella þér norður í heimahéröð, það ætla ég mér líka að gera….fer á morgun og verð eitthvað fram undir áramót, jafnvel framyfir þau..
Það eru jól þegar rjúpurnar eru borðaðar!! ekki fyrr og ekki seinna
Ef þú finnur slönguseríuna mína sem fauk af pallinum mínum síðustu nótt þá máttu svo sannarlega eiga hana.
En hafðu endilega samband ef þú stoppar á Eyrinni yfir jólin,þó ekki væri nema í einn kaffibolla.
Gleðileg jól
Já hann ódysseifur var líka sá eini sem komst lifandi frá söng sýríönunum því hann var bundinn við skipið sitt svo hann myndi ekki sleppa í tryllingnum, og þess vegna er sagan um söng síríanana til hummm hummm jamm jamm þetta lærði ég nú í listasögu…..
En já alveg tilvalið að gefa jólunum séns því það kemur að því að maður nýtur þeirra
Takk fyrir blómin og pakkaferðina, og hafðu það sem bezt um jólin kallinn.
Gleðileg jól Árni minn
Þú lætur okkur Akureyringana vita ef þú mætir á djammið hér á eyrinni! Og mundu að jólin eru aðeins það sem þú gerir úr þeim
Frohe Weihnackten Merry Christmas Gleðileg jól Gledelig jul….uhuhu kann ekki fleiri tungumál!!!!!
Batt hann sig ekki við skipið svo að hann myndi ekki verða ástfanginn af Síríunum og verða eftir hjá þeim? Rámar eitthvað i það
Eins og þú segist vera lítið fyrir jólin, þá komu þau nú í Drafnargötuna með þér og Láru, hafið bæði þökk fyrir innlitið á aðfangadag.
Er sálumessum hér með lokið eða hefur predikarinn lagt niður störf tímabundið??
ég held að það sé kominn tími á nýja færslu..hömm
annars takk fyrir farið inná eyrina og svona og það var gaman að geta eytt tíma með þér um jólin!
hvar er maðurinn? Hvenær sér maður fyrsta pistil ársins? Hér er mynd sem ég tók einhverntíman af Guðmundssyni, fyrir þá sem sakna pistils frá honum. http://www.flickr.com/photos/arngrimur/349223446/
já skemmtileg mynd
mjög flottar myndir þar á ferð!
Á nýju ári legg ég til að við hættum að fara á mis, en það höfum við gert allar götur frá því ég hitti þig í hitteðfyrra, en þá stóðstu vaktina sem öryggisvörður í BT í Kringlunni. Ég sá hvorki tangur né tetur af þér árið 2006. Það ku vera fyrsta og vonandi síðasta árið sem svo er í pottinn búið.
Halldór Svavar, þig sé ég nærri því aldrei nú orðið. Láru Dagný og Ingu sjaldan, Kristrúnu Ýr aldrei og Steina enn sjaldnar. Ottó og Ómar hitti ég reglulega. Ég legg til að skipulega verði úr þessu bætt á nýju ári. Annað er hneysa.
Sjaldnar en aldrei??
Jæja þarf ég að fara að blogga fljótlega, sýnist það. En Baldur, við hittumst reyndar á menningarnótt í Rvk ef ég man rétt, þú varst með óstöðvandi hiksta minnir mig. Við verðum samt að vinna í því að hittast oftar.
Minnið virðist nú hrella baldur eitthvað…sérstaklega ef maður hittir hann um helgar.
Það er ekki langt síðan ég hitti hann í mjög annarlegu ástandi.
En takk fyrir síðast Árni minn,það var magnað að ná að hitta á þig um jólin…og kíkka aðeins í Sjallan
Já, verðum að gera þetta oftar
Hæ sæti! Hvað er að frétta? Annars frábærar myndir alltaf hjá honum Arngrími.
Love inga
4640f28294
4640f28294
Top gambling bonus
Top gambling bonus
Gratis poker bonus
Gratis poker bonus
New casino no deposit bonus code
New casino no deposit bonus code
No deposit casino bonus coupon code
No deposit casino bonus coupon code
No deposit casino cash bonus
No deposit casino cash bonus
Instant casino bonus
Instant casino bonus
How to play craps and win
How to play craps and win
Platinum play flash casino
Platinum play flash casino
Free casino slot – play now!
Free casino slot – play now!
Platinum play casino
Platinum play casino
Get online casino bonus cash
Get online casino bonus cash
Carnival casino bonus
Carnival casino bonus
Diamond club casino bonus
Diamond club casino bonus
No deposit casino index
No deposit casino index
Palace of chances no deposit code
Palace of chances no deposit code