…og sá vitfirrti stormaði inn salinn, smaug inn í miðjan hringinn og tók til við að steppa af miklum móð við taktþungan vikivakann… (textabrot úr væntanlegri karnivalískri smásögu, kemur eftirfarandi færslu lítið sem ekkert við)

Svar við athugasemd (comment) Ketils
Þetta hafði einmitt hvarflað að mér líka, blanda af fegurð og ljótleika, stelpan hefur reynt að gera sitt til að bæta upp ljótleikann með því að sjá fyrir sér rósir. Minnir mig á þegar önnur lítil stúlka sagðist ekki borða svona ljótt kjöt.
Kannski er myndin líka ádeila á fordóma sem einkennast af tvíhyggju, annað hvort er fyrirbæri gott eða illt, ljótt eða fagurt o.s.frv. og endurspegla takmarkanir [lesist: formgerðarhindranir]  mannlegrar hugsunar og skynjunar. What you see is only half of what there is… and vice versa. Rósirnar hafa þyrna sem stinga, sviðakjamminn tilheyrði eitt sinn nýfæddu lambi og mun senn seðja hungur og gleðja þann soltna. Enginn er svo ljótur að ekki sé eitthvað fallegt við hann. Guð býr í gaddavírnum, a.m.k. samkvæmt Megasi.
Ketillinn flautar þegar vatnið sýður eins og stóð á merkimiða á Ikea-katli, sjóði of lengi gufar upp vatnið, og vitið með? Það held ég varla.
Útúrdúr
Þegar við kveðjum látna ástvini hendum við blómum í gröf þeirra einsog í örvæntingarfullri von um að kveikja í þeim fagurt líf á síðustu stundu, en það reynist ævinlega of seint. Og fölnuð rósin verður tákn um visnaðan líkama, skuggann af fagurri sál og við geymum hluta af fegurðinni áfram í huga okkar sem minningu um hinn látna þangað til röðin kemur að okkur.

Published in: Uncategorized on janúar 16, 2007 at 10:16 pm Ummæli (15)

Spurning Dagsins: Í hvað vísar hálfkláraði bannerinn að ofan?

Jæja gott fólk, nú fer ég ódýra leið í færslu dagsins og ætla að láta ykkur kæru lesendur halda henni uppi. Bið ykkur nú sem fyrr að gæta velsæmis í svörum án þess þó að hafa þau eitthvað sérstaklega tepruleg. Lára, þú veist sennilega svarið og mátt alveg láta það flakka því að hugsanlega eru fleiri en eitt svar rétt.

Látið nú til skarar skríða öll sem eitt og verið ekki feimin ;-)

I have a question!I have a question!!!!

Published in: Uncategorized on janúar 12, 2007 at 3:57 pm Ummæli (8)

Gleðilegt ár!

Sæl og blessuð öll. Ég er að dunda mér við að uppfæra “lookið” á síðunni en það gengur ekki alveg sem skyldi svo, -verið þolinmóð. Af mér er ekkert að frétta svo ég smelli hér inn einni mynd úr jólafríinu, hún var tekin á jóladag- Glitský yfir Kópaskeri í boði ljósmyndarans Láru Dagnýjar, gjörið svo vel…
216905239.jpg

Published in: Uncategorized on janúar 11, 2007 at 10:15 pm Ummæli (8)