Sæl og blessuð öll. Ég er að dunda mér við að uppfæra “lookið” á síðunni en það gengur ekki alveg sem skyldi svo, -verið þolinmóð. Af mér er ekkert að frétta svo ég smelli hér inn einni mynd úr jólafríinu, hún var tekin á jóladag- Glitský yfir Kópaskeri í boði ljósmyndarans Láru Dagnýjar, gjörið svo vel…

Gleðilegt ár!
The URI to TrackBack this entry is: http://arnasarnaeus.wordpress.com/2007/01/11/gle%c3%b0ilegt-ar/trackback/
Spurning að vera með aðeins “hressari” lit á þessu
Annars efast ég ekki um að lúkkið verði glæsilegt þegar því verður lokið
Jámm, var reyndar að spá í að hafa þetta allt hvítt og minimalískt með nokkrum litadropum til að hafa þetta ekki of dull. Takk fyrir að efast ekki, það hefur mér oft reynst erfitt
Jæja, búinn að færa þetta aðeins nær takmarkinu…
Bannerinn er töff, lífgar mjög uppá þetta
Danke! Er að hugsa um að notann frekar á uppskriftavefinn minn, verst að ég nota eiginlega aldrei uppskriftir, bý þær þá bara til þegar þar að kemur.
hvaða græja er notuð við myndatökuna??
Glitskýin eru fest á flashkubb með einhverskonar Fuji Finepix vél sem faðir vor á, man ekki frekari skil á henni en 6xopt. zoom og 3.2 megapixl ef ég man rétt. Myndirnar á bannernum eru stolnar með hjálp google og klipptar, fjölfaldaðar, yfir- lýstar og contrastaðar úr tveimur miklu stærri myndum með hinu ágæta forriti Photoshop.
Já photoshop, ég elska photoshop