James Dean fær orðið

james-dean-788575.jpg
“Dream as if you’ll live forever, live as if you’ll die today”
James Dean

Published in: Uncategorized on desember 4, 2006 at 3:36 pm Ummæli (2)

Að finna til-Tilfinning

Hvað dettur ykkur í hug þegar þið lesið fyrirsögnina að ofan? Ef til vill sársauki? Gleymum sársaukanum eitt augnablik og einbeitum okkur að hamingjunni. Finnum til gleði og lífið verður bærilegt um stund.

Happiness is nothing more than a good health and bad memory.
-Albert Schweitzer.

Prédikari sannleikans hefur lokið lygi sinni,
að sinni.

Ps. Mæli með fréttalygi Þorsteins Guðmundssonar á Rás 2, hún fær mig til að hlægja.

liar.jpg

Published in: Uncategorized on at 12:15 am Rita ummæli

Til hamingju…

…með fullveldið kæru Íslendingar! Að beiðni æsts aðdáanda míns mun ég vera jákvæður í dag og jafnvel næstu daga líka. Happy, happy, joy, joy!!!!
Brostu, það kostar ekki neitt. Hvet ykkur góða fólk til að gerast heimsforeldrar eins og ég hef verið í soldinn tíma, maður á fullt af krökkum út um allan heim og meðlagið er bara þúsundkall á mánuði hjá mér (meira að segja hægt að semja um lægra meðlag, en come on 1000kall er minna en 2 bjórar á barnum).
Jæja, gleðin og hamingjan þurrausin í bili hjá ritstjóranum,
ég mun skvetta úr skálum gleði minnar af meiri krafti en áður hefur sést vestan Jökulsár á Fjöllum næstu daga…
binary.jpg
Smellið á stelpuna og hjálpið henni!

Published in: Uncategorized on desember 1, 2006 at 8:31 pm Ummæli (2)

Hleranir-hreinsanir-græðgi-endurtekning

Hleranir
Óvinir ríkisins heitir nýútkomin bók sagnfræðingsins Guðna Th. Jóhannessonar. Í henni eru m.a. hleranir á Kaldastríðsárunum til 1976 upplýstar að einhverju leyti. Að sögn Guðna var óttinn um að öryggi Íslands væri stefnt í hættu uppsprettan og rauði þráðurinn í hlerununum.
Öllum gögnum um Atlantshafsbandalagið í íslenska utanríkisráðuneytinu var eytt 1956, þegar vinstri stjórn tók við í landinu. Þetta ákváðu embættismenn, en óvíst er að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafi vitað nokkuð um málið. -RÚV-

Maður spyr sig hvert hreyfiafl sögunnar sé, ef til vill margþætt og breytilegt hvaða þættir eru ríkjandi hvar og hverju sinni.

Hreinsanir
Ég hef grun um að óvinir ríkisins sæti einnig ofsóknum í dag, þ.e.a.s. óvinir rússneska einvaldsins Pútíns, svo sem fyrrum njósnarar, blaðamenn, pólitíkusar í fyrrum leppríkjum í Austur-Evrópu og fleiri.
Innansveitarkrónika
Nú er svo komið að sveitungar mínir í Norðurþingi og fleiri héruðum Þingeyjarsýslna eiga í stríði við ríkisvaldið um eignarréttinn svokallaða. Manni finnst það skjóta skökku við að ríkisstjórn sem kennir sig við einstaklingsfrelsi, auðvaldshyggju (hún gerir það óbeint), frjálshyggju o.fl. í þeim dúr skuli vilja þjóðnýta eignarlönd bænda og sveitarfélaga í fyrrnefndum sýslum, eða hvað? Þjóðlendumálið í Þingeyjarsýslum snýst að stórum hluta um virkjunarrétt á háhitasvæðum og jafnvel vatnsföllum. Nú er það ekki svo að skilja að heimamenn séu ekki fullfærir um virkja sjálfir, þeir hafa fyrir löngu sýnt í verki að þeir eru fullfærir um að nýta auðlindir sýnar og sóa afurðum þeirra í misjafnlega gáfulegan iðnað. Húsvíkingar hafa farið fremstir í flokki þar og lagt grunninn að álveri upp á eigin spýtur. En það sem ef til vill skýrir þessa tilhlutun ríkisvaldsins er sú “staðreynd” að til stendur að selja Landsvirkjun og vilja síamstvíburaflokkarnir eflaust hafa náð tangarhaldi á öllum raforkumarkaðnum áður en kemur að söludegi, svo þeir geti stjórnað hringrás græðginnar svo tilhlýðilegir flokksgæðingar fái nú sitt við enda hringsins. Ekki sama Jón og Séra Jón, þó hvor um sig stjórnist af sömu græðgi?

Sagan endurtekur sig, hvar er byltingin? Mun hún éta börnin sín aftur?

revolution.jpg

Published in: Uncategorized on nóvember 30, 2006 at 2:11 pm Ummæli (1)

afhjúpun/blekking: Verið óhrædd þó ég boði ekki mikinn fögnuð

Tíminn: Ég hef stöðvað tímann, tíminn er dauður, ég drap hann. Ekki vegna þess að ég er í tímaþröng, heldur vegna þess að ég gat það, fólk gerir það sem það getur gert eins og félagi Guðbergur Bergsson sagði. Tíminn er afsprengi hugsunar okkar, við bjuggum hann til vegna þess að við gátum það, ekki vegna þess að hann sé okkur nauðsynlegur, það er blekking. Klukkurnar eru inní huga okkar, en þar er líka að finna tímavél ef við hugsum okkur það.

Guð: Guð er dauður, ég drap hann ekki. Nietzche drap hann. Blessuð sé minning hans. Hvors? Nietzche drap hann ekki af nauðsyn. Við sköpuðum hann ekki af nauðsyn. Við gerðum það vegna þess að við gátum það. Hvort? Við sköpuðum Guð af því við vorum hrædd við það sem við skiljum ekki og ráðum ekki við. Það var ekki nauðsynlegt.

Óttinn: Óttinn er ekki dauður, hann lifir þokkalegu lífi í höfðum okkar. Hann er samt ekki ódauðlegur. Við bjuggum hann til vegna þess að við gátum það, ekki af nauðsyn.

Sagan: Sagan er dauð, ég drap hana um leið og ég drap tímann, hún er afsprengi tímans. Hvernig fer ég þá að því tala í þátíð? Takmörkun tungumálsins, afsprengis mannanna, ég hef ekki drepið það ennþá.

Endurtekningin: Endurtekningin er dauð, ég drap hana. Endurtekningin var sagan áður en ég drap tímann. Er þetta óskiljanleg hringskýring? Nei, þetta er takmörkun tungumálsins. Drepið endurtekninguna með því að feta ótroðnar slóðir og brjóta normin á annan hátt en áður hefur verið gert. Lifnar þá sagan við?

Eyðing tímans: Taktu mynd af stjörnuhimninum með myndavél með óendanlega langan lokunartíma á ljósopi. Skoðaðu myndina. Þá sérðu allt gerast á sama augnabliki, skynvillan sem tíminn er, hverfur. Rúmið stendur eftir hreyfingarlaust.

Orsök skynvillunar: Skynjun hreyfingar er túlkuð sem breyting í tíma, lætur tímann líða. Innri hreyfing er afstæð og miðast ávallt við hreyfingu annarra hluta. Þó herbergið í kringum mig virðist kyrrt miða við sjálfan mig sem er á vappi inní því , þá er það samt á fleygiferð vegna snúnings jarðar, og ég reyndar líka. Hvort er raunverulegt, tíminn eða hreyfingin eða jafnvel hvorugt? Prófið að stíga út fyrir heiminn og sjá hann með augum eilífðinnar. Allt verður stillt og kyrrt.

Orsakalögmálið: Þetta svokallaða lögmál er mannasetning sem við höfum troðið á milli tveggja aðskilinna fyrirbæra sem við köllum orsök og afleiðingu. Það má drepa á sama hátt og við sköpuðum það. Þetta morð ógildir það sem er rétt í þessari bloggfærslu en einnig það sem er rangt. Rök verða ógild sem og rökvillur. Orsakalögmálið er ekki nauðsynlegt, við bjuggum það til af því við gátum það.

Spámaðurinn Cosmo Tera hefur talað. Mennirnir í hvítu sloppunum eru komnir, heyrumst síðar.

Reality is merely an illusion, albeit a very persistent one.
-Albert Einstein-

Tjaldið fellur og tíminn rúllar af stað á ný.

Imagine there’s no countries
It isn’t hard to do
Nothing to kill or die for
And no religion too
Imagine all the people
Living life in peace

-John Lennon-

Published in: Uncategorized on nóvember 27, 2006 at 6:48 pm Ummæli (7)

The piano has been drinking…

…not me.

Jæja þá, ég var fullur í gær…og nú ætla ég að blogga í þeim stíl sem virðist vinsælastur, þ.e.a.s. með þrípunktum á milli sundurlausra setninga..Pútín! Hættu að drepa leyniþjónustumenn, þeir eru nú einu sinni af sama sauðahúsi og þú…Skrýtin tilviljun að Pútín er nánast nafni Raspútíns, lover of the Russian Queen eins og Boney M söng í den…Hvað ætli Pútín og Raspútín þýði á Rússnesku?…Ég drakk að kósakkasið í nótt, þ.e. viðstöðulaust… og eins og alkar segja, I had me reasons!… Ég er samt ekki alki í alvöru, bara svona wannabe Bukowsky… Alter-ego eins og þeir segja.. Einu sinni átti ég rússneskan vin sem reyndi að kenna mér að opna vélindað svo ég gæti drukkið lítra af vodka án þess að kyngja…Held hann sé á sjó núna, hver veit… Mér tókst altént ekki að tileinka mér þessa list… Svo ég er að hugsa um að fara í ræktina núna…er að fá einhver óþægileg flassbökk frá því í nótt…Lífsreynd kona þefaði úr hálsmálinu mínu og sagði „Er þetta Diesel?”… ég, gráeygður, sagði já… hún sagði „ojj” og gekk í burtu.. dýrslegar hvatir á Hressó eða hvað?… grænt te er ágætt… kaffi er gott… bjór er ógeð… lygari… hey, don’t hate the sinner, hate the sin… Wish I was a jew… Forgiveness isn’t easy…Life is beautiful, but boring, like girls… Shut up Bukowsky!…

Góða fólk, þið finnið mig í Háskólaræktinni þar sem ég hleyp af mér hornin… njótið lífsins þó leiðinlegt sé ;-)

whiteeye.jpg
Já, þetta er mitt auga…

Published in: Uncategorized on nóvember 25, 2006 at 1:41 pm Ummæli (12)

I’m in Love…

…with the Beatles :-)

Ég er búinn að vera að hlusta á nýju bítlaplötuna sem ber þann ófrumlega titil Love. Þó nafnið sé ófrumlegt þá er ekki það sama að segja um innihaldið, sem er snilld að mínu mati. Ég ætla ekki að hafa langt mál um ágæti plötunnar en bendi frekar forvitnum að kynna sér plötuna á heimasíðu Bítlanna og það sem meira er, það er hægt að hlusta á plötuna frá upphafi til enda ókeypis á síðunni.

Endilega takið þátt í þessum hlustunargjörningi og skráið nöfn ykkar á spjöld sögunnar um leið, eða svona hér um bil.

front.JPG

Published in: Uncategorized on nóvember 24, 2006 at 5:04 pm Rita ummæli

Snjóbjóður

Mér leiðist þessi hálka á gangstéttum hérna í borginni, alveg til að brjóta mann og annan. Og síðan hvenær fór eiginlega að tíðkast að hafa snjó í Reykjavík, maður gerir nú ráð fyrir að vera laus við þann viðbjóð hérna sunnan heiða. Svo er blessuð jökulsáin mín bara  búin að vera krapastífluð, þetta er nú meiri ótíðin. Hvað sem því líður er nú allavega hlýtt hér á “Árnagarðinum” og maður er nú alltaf jafnfeginn að komast inn úr kuldanum þarna úti og fá sér grænt te og hlusta á nýja diskinn hans Ray LaMontagne.

jokla.jpg
Jökulsá á Fjöllum. 

Jæja, ég hef eiginlega ekkert að segja í dag,

Árni-mesti fýlustrákur austan Jökulsár á Fjöllum kveður að sinni.

Published in: Uncategorized on nóvember 22, 2006 at 8:17 pm Ummæli (7)

Úr viðjum vanans

Merkilegt hvað sumum finnst óþægilegt að heyra sannleikann, eins og líf þeirra standi og falli með einhverri draumkenndri heimsmynd (eða sjálfsmynd) sem byggir á sjálfsblekkingu og afneitun. Auðvitað er ég ekki svo hrokafullur að halda því fram að ég falli aldrei í þessa gryfju en samt, sumt fólk virðist beinlínis lifa fyrir endilausa pollýönuleiki og persónudýrkun á skíthælum. Tjái mig ekki meir um það því margur talar stutta stund en iðrast eftir lengi (og þar með féll ég í gryfjuna).

hearnoevil
Hear no evil, see no evil, speak no evil…

Annars er ekkert að frétta af mér svo sem, lífið gengur sinn vanagang, nýjir vanar lærast og gamlir hafa verið lagðir til hliðar. Ræktin, námið, djammið, hjálpa náunganum, þiggja hjálp frá náunganum, nærast, hvílast, hugsa, dreyma o.s.frv. Hvort sem maður er nú þræll vanans eða vaninn þræll frjáls vilja mannsins. Þetta togast sennilega á, en nú ætla ég að stæla viljann og drekka vatn í staðinn fyrir bjór um helgina. Kannski er þetta bara nýji vaninn (ræktin) að reyna að losna undan samkeppni við drykkjuvanann hver veit, held samt að viljinn sé aflið sem ýtti nýja vananum af stað. Þetta er nú komið út í meira kjaftæðið.

forgiven
Forgiven.

Annars dreymdi mig Jesú í vikunni í annað skiptið á þessu ári. Ég ætla ekki að opinbera hér hvað hann hafði að segja mér að þessu sinni, en það lá bara vel á kallinum. Kannski er það hann sem hefur dröslað mér heim af djamminu upp á síðkastið og verður hvíldinni feginn, hver veit.

Ps. Ég vil benda fólki á að skoða nýlegan pistil Baldurs fjölmiðlaspekings, en þar varpar hann ljósi á forsögu Árna Johnsens, nýleg ummæli hans í fjölmiðlum auk vafasamra forsenda þess að hann getur nú boðið sig fram til Alþingis.

Published in: Uncategorized on nóvember 16, 2006 at 11:10 pm Ummæli (21)

Miðnæturbréf

Meira ruglið þetta með nafna minn Johnsen. Maður veltir því fyrir sér hvort hann geti ekki fundið sér annað að gera en að sinna þingstörfum, hæfileikaríkur maður eins og hann eflaust er. Samkvæmt kenningum atferlisfræðinnar er fyrri hegðun besta forspá, en þó má ekki gleyma hinu aðferðafræðilega vandamáli um ónæg gögn. Ég þekki ekki lífshlaup hans frá A-Ö en Vestmannaeyingar vilja meina að hann hafi látið margt gott af sér leiða og hafi fögur fyrirheit, auk þess sem hann hefur tekið út sína refsingu og ég vona einhverja betrun á Kvíabryggju.

Hinsvegar þekki ég skemmtilega sögu af honum frá því hann var ungur og efnilegur maður í Kennaraskólanum. Á sama tíma var föðursystir mín í kennaranámi og var nafni minn eitthvað að snuddast í kringum hana með grasið í skónum. Karlinn var farinn að venja komur sínar á Bergþórugötuna við litla hrifningu föðurbræðra minna, þeim fannst hann leiðinlegur og fram úr hófi góður með sig, ljái þeim hver sem vill. Svo er það í einni heimsókn Árna sem bræðurnir fá bara alveg nóg, líta hvor á annan og taka svo undir sína öxlina hvor á kauða, draga hann niður stigann og út í forstofu, henda honum út og skónum á eftir og skella í lás. Nafni minn blessaður hefur ekki sést síðan á Bergþórugötunni og er föðursystir mín hamingjusamlega gift öðrum manni.

Þessi saga var nú smá útúrdúr en mér datt í hug að þar sem Árni Johnsen lærði meðal annars að breyta grjóti í listaverk meðan hann sat í grjótinu og þar fyrir utan finnst sumum skemmtilegt að heyra hann syngja (ekki mér að vísu) hvort ekki væra hægt að ráða greyið sem bæjarlistamann Vestmannaeyja og hafa hann þá á listamannalaunum. Mig grunar að það gæti verið ódýrara fyrir þjóðina heldur en að hafa hann á þingi, auk þess sem hann væri í faðmi þeirra er unna honum mest.

Góða nótt.

Ps. Ég vil benda fólki á að skoða nýlegan pistil Baldurs fjölmiðlaspekings, en þar varpar hann ljósi á forsögu Árna Johnsens, nýleg ummæli hans í fjölmiðlum auk vafasamra forsenda þess að hann getur nú boðið sig fram til Alþingis.

Published in: Uncategorized on nóvember 14, 2006 at 12:36 am Ummæli (7)